Nokia N9 64GB - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins
Fara skal gætilega með tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið og allan aukabúnað. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda

tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið

blotnar skal láta það þorna.

Hvorki skal nota tækið á rykugum eða óhreinum stöðum né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess

geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu tækisins, skemmt rafhlöðuna og undið eða

brætt plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast innan í því og

hann getur skemmt rafrásir.

Ekki skal reyna að opna tækið öðruvísi en tilgreint er í notendahandbókinni.

Óleyfilegar breytingar geta skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld og

búnað.

106 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.

Ekki skal mála tækið. Málning getur fest hreyfanlega hluti og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Haltu tækinu frá seglum eða segulsviðum.

Til að tryggja öryggi mikilvægra gagna skal vista þau á minnst tveimur stöðum, svo sem í tækinu, á minniskorti eða

tölvu, eða skrifa niður mikilvægar upplýsingar.

Við lengri aðgerðir getur tækið hitnað. Það er í flestum tilvikum eðlilegt. Ef grunur leikur á að tæki vinni ekki rétt skal fara

með það til næsta viðurkennda þjónustuaðila.