Vernda skal tækið gegn skaðlegu efni
Vírusar og annað skaðlegt efni hafa áhrif á tækið. Gera skal eftirfarandi varúðarráðstafanir:
•
Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Þau geta innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað tækið eða tölvuna
á einhvern annan hátt.
•
Fara skal með gát þegar tengibeiðnir eru samþykktar, vafrað er á netinu eða efni er hlaðið niður. Ekki skal samþykkja
Bluetooth-tengingar frá aðilum sem ekki er treyst.
•
Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá aðilum sem er treyst. Forrit frá óáreiðanlegum aðilum
kunna að innihalda skaðlegan hugbúnað sem getur opnað gögn sem vistuð eru í tækinu, valdið fjárhagslegu tjóni eða
skemmt tækið.
•
Setja skal upp vírusvarnarhugbúnað og annan öryggishugbúnað í tækinu og tölvum sem tengjast við það. Aðeins skal
nota eitt vírusvarnarforrit í einu. Ef fleiri eru notuð getur það haft áhrif á afkastagetu og virkni tækisins og/eða
tölvunnar.
•
Ef opnuð eru foruppsett bókamerki eða tenglar að netsíðum þriðju aðila skal gera viðeigandi varúðarráðstafanir. Nokia
leggur hvorki stuðning sinn við né tekur ábyrgð á slíkum síðum.